K ráðgjöf & þjónusta — rekstrarráðgjöf byggð á reynslu og fagmennsku
Klæðskerasniðin, persónuleg og vönduð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir með áherslu á rekstur, mannauðsmál, breytinga- og verkefnastjórnun.
Meðal viðskiptavina

Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
Stjórnenda- og rekstrarráðgjafi — MBA
Katrín Dóra er rekstrar- og viðskiptafræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að vera með kennaramenntun frá Danmörku. Hún er með fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum og hefur starfað sem framkvæmda-, fjármála-, mannauðs- og verkefnastjóri.
Hún hefur starfað fyrir einkageirann, opinbera geirann og félagasamtök — m.a. sem forstöðumaður hugverkaiðnaðar og mannauðs hjá Samtökum iðnaðarins, fjármálastjóri hjá Fjarðabyggð og Dalvíkurbyggð, mannauðsstjóri hjá Norðlenska matborðinu og framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar.
Þá hefur hún jafnframt góða reynslu af stjórnarsetu.
Hún tekur að sér fjölbreytt verkefni s.s. að koma inn í tímabundna stjórnun, mannauðstengd verkefni, stjórnun skilgreindra verkefna og stefnumótun. Verkefnin hafa oft tengst greiningum sem undanfari breytinga og/eða umbóta.
Lausnir sem bæta árangur
Boðið er upp á fjölbreytta stjórnenda- og rekstrarráðgjöf, stjórnanda til leigu, mannauðsráðgjöf, verkefnastjórnun og breytingarstjórnun.
Lögð er áhersla á að vinna með fyrirtækjum og stofnunum að því að bæta árangur og veita viðskiptavinum stuðning og verkfæri til að skilgreina tækifæri, hefja framkvæmd og innleiða jákvæðar breytingar í krefjandi starfsumhverfi á síbreytilegum markaði.
Ráðgjöfin byggir á víðtækri þekkingu og reynslu. Fyrirtækið, K ráðgjöf og þjónusta, var stofnað árið 2017 og hefur boðið þessa þjónustu frá upphafi.
Rekstrarráðgjöf og umbætur
Viðskiptavinum er boðið upp á fjölþætta rekstrarráðgjöf og unnið er náið með þeim til að taka betri og upplýstari ákvarðanir, bæta rekstur og ná markmiðum sínum. Þekking og reynsla ráðgjafa er nýtt til að aðstoða viðskiptavini við að fanga þau tækifæri sem gefast og koma á jákvæðum breytingum.
Mannauðsmál og ráðgjöf
Unnið er með viðskiptavinum að því að byggja upp sterkari einingar sem laða að sér faglegt og lausnarmiðað starfsfólk. Boðið er upp á mótun eða endurnýjun stefna og verklags innan mannauðsmála og lagðar fram tillögur til að skapa enn jákvæðri vinnustaðarmenningu sem hvetur starfsfólk til dáða. Viðskiptavinir fá aðstoð við að tryggja að allur aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustaðnum sé í samræmi við lög. Þá er boðið upp á aðstoð við ráðningar, erfið starfsmannasamtöl og mótun starfsþróunaráætlana.
Breytingastjórnun
Boðið er upp á ráðgjöf og aðkomu að breytingarstjórnun þegar breytingar eru fyrirhugaðar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Við slíkar aðstæður er að mörgu að huga. Fjölmarga þætti þarf að samtvinna og oft við erfiðar aðstæður. Starfsfólk er óöruggt um stöðu sína, framtíð og stefnu við breytingar. Við slíkar aðstæður er gott að fá inn óháðan aðila sem getur metið stöðuna hlutlaust. Breytingar krefjast vandaðra vinnubragða og þarf að skipuleggja ítarlega ef vel á að takast auk mikillar eftirfylgni við innleiðingu og stöðugs endurmats.
Verkefnastjórnun
Ráðgjafi nýtir aðferðafræði í verkefnastjórnun sem felur í sér undirbúning, áætlanagerð, framkvæmd og verkefnaskil. Með því að skilgreina verkefnin í upphafi og greina þá einstaklinga sem hafa hæfni og þekkingu til að leysa verkefnin má tryggja væntan árangur. Þannig fá viðskiptavinir aðstoð við að ná fram markmiðum verkefnisins innan tíma- og kostnaðaráætlana hvort sem um er að ræða smærri eða stærri verkefni.
Hefðbundið vinnuferli hjá K ráðgjöf og þjónustu
Greining
Greining á stöðunni, oft með samtölum og/eða hefðbundnum greiningaraðferðum. Þannig er lagt mat á þarfir viðskiptavinarins.
Tillögur
Á grundvelli greiningar er lögð fram skýrar og raunhæfar tillögur að lausnum og aðgerðum og þær ræddar við viðskiptavininn.
Innleiðing
Sé þess óskað er unnið að framkvæmd og innleiðingu breytinga og/eða umbóta, í nánu samstarfi við viðskiptavininn.
Eftirfylgni
Boðið er upp á eftirfylgni með árangri og aðlögun í nánu samstarfi við viðskiptavin.

“K ráðgjöf & þjónusta styður viðskiptavini sína og veitir þeim verkfæri til að greina, hefja framkvæmdir við innleiðingu og styður við eftirfylgni verkefna í krefjandi starfsumhverfi.”Hafðu samband→
Hvað segja viðskiptavinir
“Katrín Dóra hefur komið inn í fjölbreytt verkefni hjá Mosfellsbæ og leyst þau frábærlega vel af hendi. Hún hefur leyst af stjórnendur í ólíkum verkefnum á sviði mannauðs- og umhverfismála og er mjög fljót að setja sig inn í ólíka málaflokka. Hún vinnur mjög skipulega að úrlausn mála og skilar af sér mjög skýrum og vönduðum gögnum. Þá hefur hún mikla reynslu á sviði fjármála og er mjög töluglögg. Ég mæli hiklaust með Katrínu Dóru í hverskyns verkefni á vegum fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila.
Regína Ásvaldsdóttir
Fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar
“Katrín Dóra býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviði mannauðsmála og hefur reynst sveitarfélaginu afar dýrmætur samstarfsaðili. Ráðgjöf hennar hefur styrkt innra starf sveitarfélagsins, stuðlað að skýrari verkferlum og eflt faglegt umhverfi starfsfólks. Ég get heilshugar mælt með þjónustu Katrínar Dóru fyrir þau sem leita að öflugum og áreiðanlegum mannauðsráðgjafa.
“Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa um árabil notið þjónustu K ráðgjafar við ráðningar og önnur starfsmannamál. Þjónustan hefur verið framúrskarandi þar sem hún er í senn byggð á faglegri nálgun og reynslu í rekstri og ráðningum á opinberum vettvangi.
Hlakka til að heyra frá þér
Sendu fyrirspurn og haft verður samband eins fljótt og auðið er. Einnig er velkomið að hringja eða senda tölvupóst beint.
